Almenn sala. Þegar óskað er milligöngu fasteignasala um kaup eða sölu fasteignar er ávallt gerður samningur. Þegar um almenna sölu er að ræða er fasteignin í sölu hjá fleiri en einni fasteignasölu.
Einkasala. Þegar óskað er milligöngu fasteignasala um kaup eða sölu fasteignar er ávallt gerður samningur. Hafi fasteignasali einn rétt til sölu eignar þarf það að koma fram og þá á sama tíma hve lengi sá réttur skuli standa. Slíkir samningar bera með sér hver sé uppsagnarfrestur þeirra. Öðrum fasteignasala er ekki heimilt að hefja störf fyrir viðkomandi seljanda fyrr en einkasöluumboði hafur verið sagt upp og sá frestur sem fram kemur í einkasöluumboði er liðinn. Virði seljandi ekki slíkan samning er hann bundinn af samningum og getur sú fasteignasala sem hann brýtur samningsákvæði gegn krafið hann um þóknun. Ef kaupendur setja eign sína í einkasölu hjá fasteignasölu þá er oft um það að ræða að hægt sé að fá rýmri kjör en þegar um almenna sölu er að ræða.
Fasteignasali. Þeir einir hafa heimild til að kalla sig fasteignasala sem til þess hafa þá menntun og reynslu sem lög um sölu fasteigna, fyrirtækja og skipa mæla fyrri um og hafa löggildingu ráðherra til að rækja starfann. Í þeim lögum er fasteignasölum falin margvísleg vandasöm störf í þágu kaupenda og seljenda og geta þeir með takmörkuðum hætti framselt störf sín til aðstoðarfólks (sölumanna, ritara ofl) á fasteignasölum. Öll skjöl sem unnin eru á fasteignasölum þurfa að vera undirrituð af fasteignasala og þarf fasteignasalinn að sitja alla fundi þar sem samningar eru undirritaðir.
Fasteign
Fasteign í skilningi laga um fasteignakaup er afmarkaður hluti lands, ásamt eðlilegum hlutum þess, lífrænum og ólífrænum, og mannvirki sem varanlega er við landið skeytt. Með fasteign er einnig átt við eignarhluta í húsi eða öðru mannvirki sem skiptist í fleiri en einn slíkan.
Sölumaður
Á fasteignasölum starfar aðstoðarfólk sem er fasteignasalanum til aðstoðar. Þegar sölumenn á fasteignasölum hafa fengið umtalsverða reynslu er þeim stundum í umboði fasteignasalans falið að skoða eignir til verðmats sem fasteignasalinn fer síðan yfir. Þá er þeim einnig stundum falið að vinna drög að skjölum en þau skjöl ber fasteignasala ávallt að færa í endanlegan búning með nafnritun sinni þannig að eigi verði um það villst að skjalið hafi verið yfirfarið af fasteignasalanum.
Afsal er skifleg yfirlýsing þess efnis að eignarrétti að tiltekinni fasteign sé afsalað frá einum aðila til annars.
Veðskuldabréf er skuldabréf sem tryggt er með tilteknu veði. Í fasteignaviðskiptum gefur lánveitandinn út skuldabréf þar sem skuldari ábyrgist að greiða skuldina og setur eign sína að veði fyrir skuldinni.
Kaupsamningur í fasteignaviðskiptum er gagnkvæmur samningur, þar sem seljandi lætur af hendi eða lofar að láta af hendi fasteign til kaupandans en kaupandinn greiðir eða lofar að greiða það verð sem samkomulag hefur náðst um.
Kauptilboð felur í sér skuldbindingu að um greiðslu tilgreinds kaupverðs á tilteknum tíma.
Þinglýsing. Í fasteignaviðskiptum þarf ávallt að þinglýsa kaupsamningi, skuldabréfi og afsali. Það er sýslumaður sem sér um þinglýsingar og er skjali þinglýst í því umdæmi sem fasteignin er. Með þinglýsingu er verið að tryggja að eignaréttindi séu opinber þannig að grandlaus þriðji maður öðlist ekki rétt.
Forkaupsréttur Eigi einhver forkaupsrétt að fasteign þarf að bjóða þeim aðila skriflega að neyta forkaupsréttar. Söluverð og skilmálar skulu tilgreindir á tæmandi hátt. Forkaupsréttarhafi skal svara skriflega og afdráttarlaust tilboði seljanda innan 15 daga frá því honum barst það, ella glatar hann rétti sínum til að kaupa.
Söluyfirlit er ítarlegt yfirlit sem fasteignasali vinnur að yfir atriði sem skipt geta máli við sölu eignarinnar. Þar eiga að koma fram öll grundvallaratriði um eiginleika og ástand eignarinnar. Þar á m.a. að koma fram söluverð, byggingarlag og byggingarefni, galla sem seljanda og/ eða fasteignasala er kunnugt um, föst gjöld af eigninni og áhvílandi veðskuldir, kostnaður kaupanda vegna kaupanna, húsgjöld og hvort yfirstandandi eða væntanlegar framkvæmdir liggja fyrir, eignaskiptayfirlýsing ofl.
