Gjaldskrá

Gjaldskrá
Almenn gjaldskrá Eignatorgs
Gjaldskrá - Gildir frá 1. október, 2023
 
1. Almennt um þóknun.
1.1. Eftirfarandi gjaldskrá er leiðbeinandi um þjónustu og gildir nema að um annað hafi verið samið. Söluþóknun er umsemjanleg og byggir á mati á markaðssvæði, seljanleika og nánara samkomulagi.
1.2. Þóknunarfjárhæðir í gjaldskránni eru tilgreindar með virðisaukaskatti nema annað sé tekið fram.
2. Kaup og sala.
2.1. Sala fasteigna og skipa.
2.1.1. Sala fasteigna og skráðra skipa í einkasölu 1,95% af söluverði auk virðisaukaskatts.
2.1.2. Sala fasteigna og skráðra skipa í almennri sölu 2,5% af söluverði auk virðisaukaskatts.
2.1.3. Aðstoð og/eða skjalafrágangur við sölu og kaup fasteigna og skráðra skipa 1,0% af söluverði, þó aldrei lægri en kr. 450.000,-
2.1.4. Sala félaga og atvinnufyrirtækja 5% af heildarsölu, þ.m.t. birgðir auk virðisaukaskatts.
2.1.5. Sala bifreiða sem settar eru upp í kaupverð fasteigna 3% af söluverði auk virðisauka, en þó aldrei lægri en kr. 70.000,-
2.1.6. Endursala eignar sem áður hefur verið seld í makaskiptum 1,5 % af söluverði auk virðisaukaskatts. Miðast við einkasölu.
2.1.7. Sala sumarhúsa 3,0% af söluverði auk virðisaukaskatts, þó aldrei lægri en kr. 450.000.-
2.2. Makaskipti
2.2.1. Við makaskipti er þóknun samkv. einkasölu sbr. framangreint.
2.2.2. Hafi eign sem boðin er í makaskiptum verið í einkasölu hjá öðrum fasteignasala greiðir seljandi söluþóknun samkvæmt sölumboði til þess fasteignasala.
3.0. Þóknun fyrir leigumiðlun.
3.1. Íbúðarhúsnæði
3.1.1. Þóknun fyrir auglýsingu á vefnum er innifalin.
3.1.2. Þóknun fyrir gerð leigusamnings er kr. 70.000.-
3.1.3. Þóknun fyrir fulla þjónustu við milligöngu um og gerð leigusamnings samsvarar mánaðar leigu hins leigða auk virðisaukaskatts. Lágmark kr: 150.000.- Eignatorg auglýsir, kynnir, tekur ljósmyndir, sýnir, sinnir gagnaöflun og semur leigusamning.
3.1.4. Fyrir almenna ráðgjöf og eftirfylgni, t.d. vegna vanefnda, greiðist samkvæmt tímagjaldi.
3.2. Atvinnuhúsnæði
3.2.1. Þóknun fyrir gerð leigusamnings um atvinnuhúsnæði samsvarar eins mánaðar leigu hins leigða auk virðisaukaskatts.
3.2.2. Þóknun fyrir leigusamning, sem gerður er til fimm ára eða lengri tíma samsvarar eins og hálfsmánaðar leigu auk virðisaukaskatts.
4.0. Skoðun og verðmat fasteignar.
4.1. Skriflegt verðmat á íbúðum er kr. 40.000.-
4.2. Skriflegt verðmat á rað- par- og einbýlishúsum er 50.000.-
4.3. Skriflegt verðmat á atvinnuhúsnæði er samkvæmt sérsamningi milli aðila.
4.4. Skriflegt verðmat á bújörðum er kr. 93.000.- auk kílómetragjalds á hvern ekinn kílómeter.
5.0. Ýmis skjalagerð og ráðgjöf.
5.1. Þóknun fyrir yfirferð og skoðun á samningum og skjölum við sölu eða kaup fasteigna og skipa eða annarra eigna sem fasteignasali, lögmaður eða annar hefur gert er samkvæmt tímagjaldi.
5.2. Í þeim tilvikum sem gerð veðleyfa, veðbandslausna, umboða, skuldabréfa, tryggingabréfa og annara gjörninga, sem ekki tengist kaupsamningsgerð er þóknun kr. 8.000.- fyrir hvert skjal með vottun ef við á auk tímagjalds.
5.3. Þóknun fyrir ráðgjöf, leiðbeiningar og fundarsetu er samkvæmt tímagjaldi.
6.0. Ýmis ákvæði.
6.1. Kaupendaþóknun(umsýslugjald). Kaupandi fasteignar greiðir fast gjald kr. 75.000,-  fyrir þjónustu fasteignasölunnar vegna lögboðinnar hagsmunagæslu.
6.2. Seljandi fasteignar greiðir fast gjald kr. 50.000,- auk VSK vegna öflunar gagna um eignir, svo sem vegna veðbókarvottorða, ljósrits teikninga og annarra skjala.
6.3. Kostnað við gerð og birtingu auglýsinga skal viðskiptamaður greiða samkvæmt gjaldskrá viðkomandi auglýsingamiðils hverju sinni.
6.4. Gjald fyrir vinnu fagljósmyndara er kr. 17.236.- fyrir hverja eign.
6.5. Gjald vegna aksturs vegna þjónustu utan höfuðborgarsvæðisins er kr. 140 á ekinn km.
7.0. Tímagjald.
7.1. Tímagjald löggilts fasteigna- og skipasala er kr. 32.500.-
 

Eignatorg fasteignasala - kt. 561101-2640 - Syðsta-Mörk ,861 Hvolsvöllur - Sími: 510-3500 - Vsk.nr: 72967 - eignatorg@eignatorg.is